Bækurnar og aðalnámskrá

Við þróun námsefnis á stafbok.is og verkefnavefsins verkefnabok.is hefur verið markvisst horft til grunnþátta menntunar, lykilhæfni, þrískiptingar í þekkingu, leikni og hæfni, hæfniþrepa, hæfniviðmiða námsbrauta og krafna um fjölbreytt og réttmætt námsmat. Markmiðið er að tryggja að efnið styðji við hæfniviðmið framhaldsskóla og sé í samræmi við menntastefnu stjórnvalda.

Bækurnar á stafbok.is leggja fræðilegan grunn með skýrum og aðgengilegum texta, lykilhugtökum og tengingu kenninga við raunveruleg viðfangsefni. Verkefnabok.is er viðbótarvefur sem útfærir hæfnimiðaða þjálfun og námsmat í samræmi við aðalnámskrá. Þar eru fjölbreytt og þrepaskipt verkefni sem styðja markvissa notkun símats og leiðsagnarmats í daglegu kennslustarfi. Uppbyggingin styður stigvaxandi þróun frá þekkingu yfir í leikni og hæfni, þar sem nemendur fá regluleg tækifæri til að æfa sig, fá endurgjöf og bæta vinnu sína áður en lokamat fer fram.

 

Grunnþættir menntunar

Grunnþættir aðalnámskrár fléttast inn í efnistök, verkefnagerð og námsmat.

Læsi: Textar eru skrifaðir á skýran og aðgengilegan hátt. Verkefni byggja upp gagnalæsi, röksemdafærslu og tjáningu í ræðu og riti.

Sjálfbærni: Umhverfis- og samfélagsmál eru tekin fyrir í sérbók og meðal annars samþætt í umfjöllun um efnahag, menningu og samfélagsþróun.

Lýðræði og mannréttindi: Nemendur greina stjórnmál, jaðarhópa og samfélagsleg álitaefni og þjálfast í upplýstri rökræðu.

Jafnrétti: Fjallað er um kyngervi, kynhlutverk, félagsmótun og mismunun. Einfaldaðar útgáfur bóka stuðla að jöfnu aðgengi að námsefninu.

Heilbrigði og velferð: Í Heilsufélagsfræði er unnið með líkamlegt, andlegt og félagslegt heilbrigði í samfélagslegu samhengi.

Sköpun og nýsköpun: Í Nútímafélagsfræði, Félagsfræði loftslagsbreytinga og köflum um atvinnulíf er lögð áhersla á samfélagsbreytingar, nýsköpun og skapandi lausnir.

 

Hæfnimiðuð uppbygging

Námsefnið byggir á þrískiptingu aðalnámskrár: þekkingu, leikni og hæfni.

Þekking:
Lykilhugtök og kenningar eru útskýrð á skýran hátt og tengd raunverulegum viðfangsefnum. Sérstök áhersla er lögð á rannsóknaraðferðir og tengingu fræða við samtímann.

Leikni:
Nemendur beita hugtökum í ritgerðum, greiningum, rökræðum og heimildavinnu. Þeir læra að skipuleggja vinnu, velja viðeigandi aðferðir og miðla niðurstöðum.

Hæfni:
Nemendur samþætta þekkingu og leikni, vinna sjálfstætt, meta heimildir gagnrýnið og setja fram rökstudda afstöðu. Lögð er áhersla á siðferðilega ábyrga notkun tækni og upplýsinga.

Stigvaxandi uppbygging tryggir að efnið nýtist ólíkum námsleiðum og mismunandi hæfniþrepum.

 

Verkefnagerð og námsmat

Verkefnabok.is styður við fjölbreytt og hæfnimiðað námsmat í samræmi við aðalnámskrá.

Vefurinn inniheldur meðal annars:

  • þekkingarverkefni sem byggja upp hugtakaskilning
  • greiningar- og röksemdaverkefni
  • heimasíðugreiningar og gagnalæsisverkefni
  • ritunar- og rökræðuverkefni
  • sjálfsmat og jafningjamat
  • símat og leiðsagnarmat

Þannig styður verkefnavefurinn kennara við að byggja upp réttmætt, gagnsætt og markvisst námsmat.